Hundaskólinn Okkar ehf
Hundsaskólinn okkar var stofnaður árið 2006 kennari og eigandi skólans er Guðrún Hafberg.
Guðrún hefur víðtæka reynslu í þjálfun og uppeldi hunda, hún eignaðist sinn fyrsta hund 14 ára og hefur frá árinu 1991 ræktað ýmsar tegundir hunda undir ræktunarnafninu Sólskinsgeisla.
Árið 1992 varð hún aðstoðarþjálfari í Hundaskólanum á Bala á Álftanesi og hefur frá þeim tíma aflað sér réttinda frá Hundaræktarfélagi Íslands (HRFÍ) sem leiðbeinandi á hvolpa- og grunnnámskeiðum, hlýðni I og hlýðni II.
Guðrún hefur dómararéttindi í hlýðnikeppnum og hefur dæmt bronspróf og vegum HRFÍ.
Guðrún starfaði við Hundaskólann á Bala til ársins 2000, er starfsemi skólans var færð undir HRFÍ, og við hundaskóla HRFÍ frá þeim tíma til ársins 2008.
Guðrún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Hundaræktarfélag Íslands, m.a. setið í skólastjórn félagsins, ræktunarráði retrieverdeildar, siðanefnd og nú síðast í sýningastjórn.